|
|
|
|
Menn meš pening=menn meš völd?Hver er ykkar skoðun á titli bloggsins? Ég hef nefnilega verið að fylgjast með umræðunni sem er í gangi í Eyjum þessa dagana og er BARA gáttuð. Samgöngumálin hafa náttúrulega verið skoðuð og rædd fram og til baka af eyjamönnum sem og öðrum ráðamönnum þjóðarinnar og sitt sýnist hverjum, eðlilega. Niðurstaðan er samt sem áður að ákveðið hefur verið að gera höfn í Bakkafjöru. Menn vildu að sjálfsögðu fá göng en ráðamenn þjóðarinnar blésu það af og því sett púður í þessa höfn. Nýtt skip verður smíðað sem siglir þarna á milli og verður siglingatíminn 30 mín og siglt verður á milli nokkrum sinnum á dag. Þetta er sem sagt ákveðið og ég segi bara gott mál að það verði þá eitthvað gert. Persónulega er ég mjög sjóveik og fer því ekki eins oft og ég myndi vilja til eyja á veturna. Sigling frá Þorlákshöfn tekur 2.45 mín og þá tekir við 40 mín keyrsla í bæinn. Að sigla frá Bakkafjöru í 30 mín er eitthvað sem ég myndi algjörlega þola til að komast til paradísareyjunnar. Nú þegar það er verið að byrja á þessari framkvæmd í bakkafjörunni stígur hópur manna upp og ætlar að mótmæla þessu. Nú hrissti ég hausinn....búið að er að ákveða þetta allt saman en nei þá dettur fólkinu í hug að mótmæla. Hvar voruð þið þegar ákvörðunin var tekin spyr ég bara? búið er að opna heimasíðu með undirskriftum fólks sem er að mótmæla þessari framkvæmd og er tæplega 2.700 manns búið að skrifa undir. Fólk sem bæði á heima í eyjum og svo annars staðar, lítil börn og fl. í þessum dúr. Ég get ekki annað en sagt það að þetta kemur sér mjög illa fyrir eyjamenn sama hvern þeir styðja. Ég held að menn ættu nú bara að vera sáttir við að það eigi nú í fyrsta lagi að eyða pening og púðri í að bæta samgöngurnar sem fyrir eru það er sko ekki sjálfsagt mál að ríkið skuli ætla að eyða þessum pening í eyjarnar. Meira bullið!!! Menn ættu sko heldur betur að taka saman höndum og styðja það sem ákveðið hefur verið og vona ég svo sannarlega að ráðamenn þjóðarinn haldi sínu striki áfram....kannski að þessir eyjamenn vilji bara að það verði bara hætt við allt? Spurning dagsins........menn með peninga samasem menn með völd? Rólegheit? NAHNú kemur heldur betur læritörn en sem betur fer er þessari önn að ljúka. Tvö frekar stór lokaverkefni framundan og þá er þetta búið í bili. við skelltum okkur til Eyja um helgina og jeminn hvað þetta var yndisleg helgi. Frábært veður alla helgina og komst maður algjörlega í vorfílinginn enda vorum við Jón Grétar meira og minna úti að leika eða rúnta um eyjuna. Merkilegt hvað maður verður alltaf endurnærður eftir dvöl í eyjum...sér í lagi þegar maður þarf ekki að drattast fram og til baka með Herjólfi *Framundan er djamm með yndislegu kennó-vinkonum mínum og verður sko vonandi tekið á því. Svo er bara lærdómur og svo ætlum við að skella okkur á leikritið með Skoppu og Skrítlu á sunnudaginn með prinsinum. * Við fórum með Jón Grétar til augnlæknis fyrir helgi en hann á það til að vera svo þreyttur í augunum og píra þau þegar hann horfir á TV. Frekar skrítið að sjá hvernig augnlæknar skoða svona lítil börn og hvað þá að þeir geti séð að viðkomandi barn verði nærsýnt og þurfi gleraugu í framtíðinni. Skil ekki hvernig þeir geta séð þetta því ekki getur Jón Grétar sagt frá því hvort hann sjái vel eða illa. Við vorum svo sem alveg viðbúin því að prinsinn þyrfti gleraugu því líkurnar voru töluverðar í ljósi þess hvernig sjónin er hjá Jónasi. Vonandi að prinsinn þurfi bara ekki gleraugu fyrr en hann byrjar í skóla. Vinkonur mínar hafa alltaf gert grín af mér að ég hafi svona "thing" fyrir strákum með gleraugu og það er alveg hellingur til í því.....þeir eru bara SVO sætir með gleraugu og auðvitað verður prinsinn minn engin undantekning þar. Knús að sinni Holy Slórari daušans ;)Já þegar ég á að vera að gera verkefni þá get ég verið svo mikill slórari að það hálfa væri alltof mikið. Sér í lagi verkefni þar sem ég hef þannig séð frjálsar hendur en mér finnst mun betra að fá nokkuð góðan ramma til að fylgja eftir. kv Helga Afmælisbarn dagsins Þessi yndislegi strákur á afmæli í dag og heldur upp á það í Mílanó takk fyrir að dagurinn verði frábær. Endalausir kossar og knús frá okkur í Arnarsmáranum. Helga og Jón Grétar Grasekkja meš lķtinn lasarusBetri helmingurinn minn skrapp í vinnuferð til Mílanó og verður þar fram á föstudag. Vona að ferðin verði frábær í alla staði en þeir sem þekkja hann vita að hann vinnur "doldið" mikið og svo á hann líka afmæli á morgun þannig að hann fær sér vonandi einhvern geggjaðan ítalskan mat. Well er farin að sinna lasarusnum.... knús í krús Holy |
158 hafa lagt orš ķ belg